Þá er átakið Hjólað í vinnuna hafið. Kennaraháskólinn er einungis með 4 lið í keppninni sem mér finnst slakt af jafn stórum vinnustað, 32 starfsmenn af 204 eru skráðir til leiks. Það mætti vera betri þátttaka. Mitt lið ætlar hins vegar að sigra innanhússkeppnina og er strax komið í forystu eftir 2 daga. Þetta á ekki að vera nein keppni en hvernig getur maður tekið þátt án þess að að reyna að sigra. Ég bara segi svona.
Sem stendur er Kennaraháskólinn í 10.sæti í sínum flokki og mun ég gera mitt besta til að gera skólanum ofar á listann. Hins vegar fer ég á ráðstefnu í Manchester í næstu viku og missi 3 hjóladaga. Ég verð því að reyna að ganga í “vinnuna” í Manchester.
Hjólað í vinnuna!
8.5.2008 eftir netkver

