Feeds:
Færslur
Ummæli

Þessa daga er ég að hlusta á “Luftslottet som sprängdes” eftir Stieg Larsson á sænsku. Að hlusta á þessa sögu er ágætis upprifjun á sænskukunnáttu minni sem hefur minnkað með hverju ári sem líður. Það er kominn tími til að rifja kunnáttuna upp og auka við orðaforðann.

Ég er byrjaður að hjóla aftur. Það byrjaði þó ekki vel. Ég þreif hjólið, smurði, pumpaði í dekk og gerði allt klárt. Fór svo að hjóla í gær og komst 8 metra og þá sprakk á afturdekkinu. Það þýddi þó ekkert að hætta við hjólatúrinn og tók því hjólið hennar Hildar. Gekk mjög vel í svona 18 km en þá datt önnur sveifin af hjólinu og þurfti ég að hringja í sérstakan viðgerðarmann sem ég hef og kom sá aðili (litla systir) eftir skamma stund. Málinu reddað og ég hélt af stað aftur. Fór samtals um 26 km þennan dag. Í dag keypti ég svo 2 ný dekk og setti undir hjólið mitt í dag og keypti svo viðgerðarsett og litla tösku undir sætið og er þá vonandi tilbúinn næst þegar eitthvað bilar á hjólinu :) Ég þarf að finna á netinu bremsupúða fyrir Shimano diskabremsurnar mínar en Örninn átti þá ekki til í dag. Ég er búinn að finna líklega tegund hérna og á eftir að skoða það betur hvort þetta sé rétt tegund.

Ég mun svo skoða næstu daga hvort ég geri eitthvað meira fyrir hjólið en það er stefnt á að fara eina stóra hjólaferð í sumar. Segi frá því síðar.

Nú þarf að vanda til verka og mun ég því hefja skrif að nýju.

Ég þarf að finna gott efni til að miðla og veit ég ekki hvort ég eigi að setja hugmyndir mínar niður hér.
Ég er að hlusta á hljóðbók eftir Terry Goodkind, bók nr. 7 í flokknum Sword of Truth, Pillars of Creation. Ég er einnig að lesa bókina Gettings Things Done eftir David Allen.

Ég er alveg ágætur af psoriasis í dag, þ.e.a.s. ég hef verið mun verri á þessum tíma ársins. Nú er minn versti tími að hefjast, þegar miklar sveifur verða á hitastigi og mun ég fylgjast grannt með blettunum mínum. Ég vona að ég þurfi ekki að sækja um loftlagsmeðferð á Kanaríeyjum þetta árið.

Í vinnunni er ég að vinna að nokkrum verkefnum og ber þar helst að nefna færslu starfsfólks yfir á HÍ netið sem virðist ekki ætla að taka enda. Ég hef þó sett það markmið að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1.júní en þá fara starfsmenn að týnast út í sumarið.

Ég mun vinna fyrir yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis í alþingiskosningunum þann 25. apríl n.k. og hlakka ég mikið til enda er það gríðarlega skemmtilegt og krefjandi.

Ferðin heim

Hér er flugáætlun fyrir morgundaginn:

JK5005 LPA MAD 06:25 10:05

JK9001 MAD CPH 13:30 16:45

FI213 CPH KEF 19:45 20:55

Útskrifaður!

Ég var í síðustu læknisskoðun fyrr í dag og telst nú útskrifaður af heilsubælinu. Það eru samt 2 sólardagar eftir og verður “tekið á því” í sólinni. Olía og alles ;)  

Þegar ég kom hingað var ég með 8 í PASI og er nú með 0,9 og eru það hendurnar sem gefa 0,9. Ég er rosalega ánægður með árangurinn og gefur þetta mér aukinn styrk til að takast á við sjúkdóminn í vetur.

Nú er 1 vika þar til ég kem heim aftur. Þessar 2 vikur sem eru liðnar hafa verið mjög áhugaverðar og lærdómsríkar. Sá hluti loftlagsmeðferðarinnar hér á Valle Marina sem lítur að fræðslu um sjúkdóminn og aðrar hliðar hans hafa stórbatnað. Ég er búinn að hlusta á fyrirlestra um húð og sól, hvað ber að varast og hvaða krem sé best að nota, fyrirlestra um sjúkdóminn sjálfan, fyrirlestra um mataræði og fleira. Hér er einnig unnið með einstaklinginn sjálfan og sjálfsímynd hans. Það er gaman að sjá hversu margir eru ánægðir með veruna hér og finnast þeir hafa kastað af sér ákveðinni byrði sem sjúkdómurinn hefur lagt á þá. Hvað varðar mig sjálfan þá er ég ánægður með árangurinn á þessum 2 vikum. Ég hef fengið hér gott tækifæri til að eiga við minn sjúkdóm meðal jafningja og án þess að vera á sjúkrahúsi með öllum þeim neikvæðum hliðum sem legu á sjúkrahúsi fylgir. Ég hef eignast hér góða vini íslenska, norska og sænska og vona ég að sú vinátta haldist áfram.

Ég er kominn upp í 7 sólbaðsstundir á dag, 3 klst án varnar og 4 með vörn (8). Ég fer að minnka vörnina enn meira. Hér er 24-32 stiga hiti og einstaklega þægilegur vindur. Það hefur rignt 1 dag síðan ég kom og er rignarspá fyrir morgundaginn. Fæ þá ágætis hvíld frá sólinni. Það er læknisskoðun á sunnudaginn og þá verð ég útskrifaður og sé þá hvernig þetta hefur gengið.

Valle Marina dagur 3

Þá er dagur 3 að kveldi kominn og hefur þetta verið ágætur dagur.

Dagurinn byrjaði með morgunleikfimi kl. 08 og stóð í 30 mín. Síðan fór ég á fyrirlestur um “Sol og krem” sem hjúkrunarfræðingar hér hafa sett saman. Það var virkilega áhugaverður fyrirlestur og má segja að ég hafi lært eitthvað nýtt þar. T.d. að UVB geislar sólar ná eingöngu í húðleðrið og valda því að maður brennur eða verður brúnn. Einnig valda þessir sömu UVB geislar því að það hægist á endurnýjun húðar en það er mjög gott fyrir psoriasis sjúkling þar sem endurnýjun húðar á sér stað um 10 sinnum hraðar en á venjulegum manni sem er ekki með psoriasis. Það var einnig fræðsla um þau krem sem maður á að bera á sig og þá sérstaklega fyrir psoriasis sjúklinga, notkun stera (cortison), sólarböð og fleira.

Einnig kom fram að ofnæmiskerfið í psoriasis sjúklingum er sterkara en í venjulegum manni. Það að finna betur út úr því. En sólarböð veikja ofnæmiskerfið og það veldur t.d. því að við erum næmari fyrir kvefi en ella þegar við erum í sólarlöndum.

Ég ætla að reyna að fá glærurnar hjá hjúkrunarfræðingunum svo aðrir geti fræðst um þetta líka.

Veðrið í dag var fínt, um 29 stiga hiti (38 á mælinum við ströndina), heiðskírt og örlítill vindur.
Ég er búinn að taka smá lit og hef eins og aðrir hér á svæðinu aðeins “roðnað” en okkur er ráðlagt að sóla okkur alveg á nippið með að brenna.

Ég flutti í aðra íbúð hérna á svæðinu í dag og hef ekki lengur mjög góða nettengingu. Þarf að sitja úti á pallinum hérna fyrir framan til að ná einhverri tengingu.

Fyrir þá sem vilja fylgjast með veðrinu hérna á Kanaríeyjum þá er hér linkur á “veðurstöð” sem er í sama bæ og ég er í.

Þá er ég kominn til Valle Marina á Gran Canaria og verð hér næstu 3 vikurnar í loftlagsmeðferð vegna psoriasis. Hér er sól og 34 stiga hiti.

Það er þráðlaust net á svæðinu þannig að ég mun setja inn færslur vonandi reglulega um hvernig þetta gengur hérna. Þetta byrjaði ekki vel, það var ekki búið að tilkynna það til Elisabetar sem er hjúkrunarforstjóri hér að við Íslendingarnar (2) værum á leiðinni en að sjálfsögðu vorum við boðin velkomin og við fengum okkar íbúðir. Ég þarf reyndar að yfirgefa þessa íbúð á föstudaginn vegna þess að það á að mála eitt herbergi í henni. Það er fundur hérna kl. 5 að staðartíma sem ég er ekki enn búinn að komast að hver er en ég held að ég sé klukkutíma á undan Íslandi.

Valle Marina

Eg mun fara til Valle Marina a Kanarieyjum thann 9.sept. og verd thar i 3 vikur i loftlagsmedferd vegna psoriasis.

Older Posts »